Eru kökur nammi?

Í dag er laugardagur, NAMMIDAGUR! Ég hef eitt mikilli orku í að rökræða við heitmann minn um hvort það sé réttlætanlegt að fara út í búð og versla inn heilan helling af nammi. Sjáið þið til við vorum á þvælingi í gær og enduðum í kaffi hjá mömmu gömlu, hún gaf okkur fullt af kökum með kaffinu, sem voru svona sæmilegar á bragðið. Þær voru s.s. ekki frá Sauðárkróksbakarí og ekki heldur heimabakaðar. Þetta voru sykursætar kökur úr Eyjafirði og þar að leiðandi sæmilegar!

En s.s. ég sagði við sykursnáðan minn "Það er svo langt síðan ég hef keypt nammi, mig langar að fara í dag og kaupa fullt fullt af nammi", "Nei Guðrún mín, þú fékkst kökur í gær, kökur eru nammi og við kaupum því ekkert nammi í dag" WHAT!! Hei á þetta að vera enn eitt spaugið, auðvitað eru kökur ekki nammi, ég meina þó að það sé sykur í þeim, þá er það bara alls ekki það sama. Nammi er svona meiri sykur og meiri lakkrís og meiri karamella og meira súkkulaði.....

Reyndar plataði ég elskuna í bakaríið áðan (Sauðárkróksbakarí) þar sem hann splæsti á mig einhverskonar samloku með kjúkling, beikon, grænmeti og sósu. Að sjálfsögðu notfærði ég mér hvolpaaugun, hallaði höfðinu aðeins til hægri og blikkaði augunum sakleysislega, bað samt ekki um neitt en hann horfði á mig og spurði hvort mig langaði í eitthvað fleira og að sjálfsögðu fékk ég mér kökubita, keypti tvo bita sem ég skipti á milli okkar, einn var svona með kryddbragði og karamellukremi hinn var með brúnum botni, bananamauki og súkkulaði kremi. ÞETTA VAR GEÐVEIKT GOTT InLove

Samt sem áður hef ég ekki gefist upp varðandi það að kökur séu nammi, kökur eru bara kökur, nammi er nammi....Ég meina er hægt að segja að nammi sé kökur? Eða kökur eru nammi?? Uuuuuu leif mér að hugsa......NEI það er bara ekki hægt að segja það... og hana nú...Angry

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband