Fullkomin dagur...

Við fórum í berjamó í gær sem er svo sem ekkert merkilegt þar sem að margur íslendingurinn fer á hverju hausti og tínir ber. En það var samt eitthvað svo ljúft að keyra með drengina upp á Þverárfjall, með nesti í poka og tómar krukkur til að fylla. Sólin tók á móti okkur og berin líka. Við vorum minnt á að veturinn er á næsta leyti með kaldri golunni sem náði að smjúga í gegnum okkar varnir, þannig að kuldahrollurinn lék um líkamann. Eftir örlitla stund lægði og sólin sendi okkur geisla sína, heita og notalega. Ég samdi við sólina um að fara hvergi, heldur eyða deginum með okkur í berjamó og það gerði hún. Lyngið var farið að láta á sjá og fallegir haustlitirnir farnir að skarta sínu fegursta. Berin biðu í röðum eftir að vera tínd, svo fallega blá á litinn. Ég hugsaði með mér að vera dugleg að tína þessar auðlindir sem móðir náttúrunnar færir okkur á silfurfati.

Nestið var dregið upp, kakó og dásamlegar veitingar frá Sauðárkróksbakarí. Síðan lágum við hlið við hlið og leyfðum geislum sólarinnar að dansa á okkur, kúrðum saman öll þrjú í lítilli laut og nutum þess að vera saman. Lokuðum augunum og hlustuðum á niðinn frá læknum skammt frá. Ég tók sérstaklega eftir því að engar randaflugur voru á sveimi, ekkert suð sem fær hárin til að rísa.

Þetta var fullkomin dagur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Ólöf Sigurðardóttir

Váá þú skrifar svo ljóðrænt og fallega Guðrún mín að mér líður næstum eins og ég hafi verið þarna með ykkur. Fyrir utan þá örlitlu staðreynd að ég veit að ég var alveg örugglega á suðvesturhorninu. Eða var það ekki annars, var ég kannski þarna, jæja þú lætur mig vita. En allavega það er hreinn unaður að lesa skrif þín eins og ávallt kæra vinkona. Miss jú..

María Ólöf Sigurðardóttir, 4.9.2009 kl. 13:34

2 Smámynd: Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir

Þakka þér fyrir María mín. Þú varst með okkur í berjamó, andinn þinn sveif í loftinu....Miss jú tú...

Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir, 4.9.2009 kl. 14:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband