VINUR Í GRENND.Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á, í víðáttu stórborgarinnar. En dagarnir æða mér óðfluga frá og árin án vitundar minnar. Og yfir til vinarins aldrei ég fer enda í kappi við tímann. Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er, því viðtöl við áttum í símann. En yngri vorum við vinirnir þá, af vinnunni þreyttir nú erum. Hégómans takmarki hugðumst við ná og hóflausan lífróður rérum. "Ég hringi á morgun", ég hugsaði þá, "svo hug minn fái hann skilið", en morgundagurinn endaði á að ennþá jókst mill´ okkar bilið. Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk, að dáinn sé vinurinn kæri. Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk, að í grenndinni ennþá hann væri. Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd gleymd´ ekki, hvað sem á dynur, að albesta sending af himnunum send er sannur og einlægur vinur. |
Þýtt Sig. Jónsson tannlæknir
Flokkur: Bloggar | Facebook
«
Síðasta færsla
|
Næsta færsla
»
Athugasemdir
Ég gleymi þér aldrei fallega vinkona og ef næst þegar ég sé þig þá baka ég lummur handa þér blómarós.
Emma Agneta Björgvinsdóttir, 14.6.2008 kl. 13:10
fallegt ljóð snökt.
Emma Agneta Björgvinsdóttir, 14.6.2008 kl. 13:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.