Færsluflokkur: Bloggar
litum snjóinn rauðan
9.12.2006 | 18:00
Jæja Emma mín, nú er ég að fara að leggja af stað til þín með rauðvínsflösku og ástríðu (passoa) ég hlakka voða til að fá að knúsa þig svona "live" ekki bloggknús þó að þau séu nú ágæt
Ólafur þú færð bara eitt stórt bloggknús í staðin
Knús líka þeirra sem eru að njósna!!!! (það má sko ekki skilja útundan)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Spennufall
8.12.2006 | 11:27
nú er prófið búið og ég vona að ég hafi náð þessu, annars er aldrei að vita þegar tölur eru í dæminu þarf ekki nema að slá einu sinni inn vitlaust og þá er komin villa En hvað um það er mjög bjartsýn tel að ég nái 4.8 eða hér um bil 5
Annars er ég nú að spá í að kúra í klukkutíma og fara síðan á fullt að gera allt hreint og fínt í litlu agnarsmáu íbúðinni, var búin að lofa drengjunum að skreyta í dag. Kannski kemst ég í smá jólaskap, nú snjóar mikið úti ekta jólasnjór... (jólasveinabroskall)
Knús knús til ykkar ALLRA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
peningar peningar peningar
8.12.2006 | 01:01
Það var nú eitt sem ég gleymdi að segja ykkur en ég fékk rukkun í póstinum í gær frá innheimtustöð sekta og sakarkostnaðar...heilar 3.750 krónur sem gætu orðið 5.000 krónur ef ég greiddi ekki sektina fyrir 3. janúar 2007.
Greiddi þessa blessuðu sekt strax þar sem ég á það til að vera smá gleymin
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Prófprófprófpróf
8.12.2006 | 00:46
Nú fer að koma að síðasta prófinu í rannsóknaraðferðum (vonandi!!). Ég hlakka svooo til síðan eru bara tvö próf í næstu viku og mun ég fagna því á Akureyri um helgina Það hafa verið að koma inn tölur úr verkefnum, en ég stend svona misjafnlega í stigum frá 6.5-9 tel ég þetta vera hin sæmilegi árangur, miðað við mikla leti á líðandi önn. Á sjálf ekki orð yfir því hvað ég leifði frestunaráráttunni að stjórna för í vetur Talandi um frestunaráráttu, en í staðin fyrir að eyða deginum í að læra undir prófið á morgun (tölfræði) þá skellti ég mér til Akureyrar í aflubbun...
En nú er komin tími til að kúra svo ég verði voða morgunglöð, syngjandi og trallandi (eins og alltaf) he he
Knús og kossar og Emma mín takk enn og aftur fyrir kaffið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
BÚÚ!!!
6.12.2006 | 20:18
Eftir að hafa lesið blogg hjá ónefndum stríðnispúka um hrekkjasögur og kvikindisskap þá fór ég að velta því fyrir mér hvort að ég væri nokkuð hrekkjusvín Komst að því að ég er mjög saklaus í þessum málum þar sem að ég mundi bara eftir einu atviki, sem ég ætla að deila með ykkur.
Þetta átti sér stað í sumar þegar að ég, Emma og fleiri vorum að vinna hjá Ferðaþjónustunni að Hólum. En é, Emma og stúlka sem ber nafnið Ásdís skellum okkur á tónleika í Hólakirkju eitt kvöldið, en eftir að við vorum búnar að sitja í klukkustund og hlusta á óperusöng, fórum við á Veitingastaðinn Undir Byrðunni (sem er staðsettur á Hólum). Ásdís og Emma svolgruðu í sig þurru rauðvíni eða einhverju öðru áfengu (man þetta nú ekki alveg). Ég hins vegar fékk mér kók light sem mér þótti þá alveg afspyrnu góður drykkur, þjóninn ægilegi settist hjá okkur í smá stund ásamt fleirum og hófust miklar samræður um stjörnumerki og fleira gáfulegt. Allt í einu lítur ægilegi þjóninn á mig og segir "veistu hvað þú ert að drekka?" ég ansa því játandi að þetta sé kók light, "veistu hvað er í kók light" og ég taldi mig nú vita það koffín og óhollusta. En þarna gleymdi ég einum mikilvægum hlut eða efni sem heitir "Aspartan" en það er sætuefni sem leggst á æðakerfið í líkamanum og ble bble ble bleeee....ég fékk sem sagt þvílíka fyrirlesturinn yfir mig.
Daginn eftir þegar að ég er í vinnunni mætir ægilegi þjónnin í vinnuna frekar slappur og þunnur á að líta og ég bíð honum Svala þar sem að ég kenndi svo í brjós um hann. Í sakleysi sínu horfir hann á mig og segir "Guðrún, en hvað þú ert góðhjörtuð að bjóða mér þennan drykk" Ég brosi fallega og halla höfðinu örlítið til hægri og blikka augunum sakleysislega "já ég sá að þú varst eitthvað hálf slappur"
Eftir fimm mínútur kemur ægilegi þjónnin askvaðandi og segir "Guðrún, veistu hvað þú varst að bjóða mér?" Ég glotti örlítið og segi sakleysislega "ha neeeei" "Guðrún, þetta er sykurskertur Svali og hvaða efni er í öllum sykurskertum vörum, jú aspartan, lærðir þú ekkert af því sem ég sagði við þig í gær" Við þessi orð gat ég ekki annað en sprungið úr hlátri og hló og hló og hló, og benti honum á dagssetninguna á Svalanum en hann rann út í fyrra...það var minn hrekkur að gefa honum útrunnin Svala en að hann væri sykurskertur var svona plús sem ég fattaði ekki fyrr en ægilegi þjónnin fór að röfla í mér með hálf tóman Svaladrykk í hendinni.
Veit ekki fyrir víst hvort að hann sé búin að fyrirgefa mér þennan hrekk en hann spurði mig hvað ég gerði eiginlega við óvini mína ef ég kæmi svona fram við vini mína Veit heldur ekki hvort að það hafi verið hrekkurinn sjálfur sem að honum sárnaði mest yfir eða það hvað ég hló lengi að þessum hrekk. Auk þess reyndi ég að gabba kokkana í eldhúsinu en þeir voru fljótir að líta á dagssetninguna, einn sagðist reyndar hafa séð púkaglampa í augunum á mér....
Þetta var sem sagt sagan af mínum eina hrekk í gegnum fjölda mörg árin sem ég hef lifað
Knús knús
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hæ elskurnar
4.12.2006 | 00:42
Ég er komin heim í fagra dalinn, búin að eyða tveim nóttum í ómenningunni og hafði nú gaman af...skelltum okkur á Ronju í dag, veit ekki hver lifði sig meira inn í sýninguna ég eða drengirnir
Þið getið ekki trúað í hverju ég lenti fljótlega eftir að ég var búin að keyra í gegnum Blönduós á leiðinni til Rvík...jú jú fékk helvítis bláu ljósin á mig....var nú dálítið hissa því ég var nú ekkert svo langt yfir hámarkshraða. En þeir eru nú með þetta á hreinu ríku löggurnar á ósi, ég var tekin á 100 km hraða og löggu ....(bíííííbbb) sagði mér að nú væri búið að breyta reglunum og allir teknir sem fara yfir 99 km hraða .... þessar fréttir glöddu mitt litla hjarta alveg gríðalega eða þannig. En þegar ég heyri og sé svona smámunasamt fólk vefst mér bara tunga um tönn og þegar að hann spurði mig hvort ég vildi eitthvað tjá mig um þetta, sagði ég bara "sek" brosti stíflega (svona bros sem að allir sjá að maður meinar engan veginn) og fór yfir í fallegu bingókúluna mína þar sem tveir ormar biðu eftir mömmu sinni. Annars verð ég nú að segja að ég hlakka til að fá sektina, heyrði í fréttunum að lægsta gjald fyrri hraðastur væri frá 101 km- ??? km, fróðlegt verður að sjá hvort ós löggan taki mig í rassgatið og rukki mig!!!!
Langaði nú aðalega að kasta á ykkur kveðju og óska þér Ólafur til hamingju með afmælið...vona að þú haldir áfram að hrekkja fólk og segja okkur hinum frá því ..he he
Knús knúúússs
Bloggar | Breytt 6.12.2006 kl. 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Uuuuuu veit ekki hmmm haaaa
1.12.2006 | 01:50
Jæja elsku leynibloggfélagar og gáfaða fólK,
Nú er konan á bingókúlunni komin í gírinn að læra læra læra rosa gaman. Var smá pirrrrrr út í hópafélagana í kvöld en þá kom Sigga vinkona í spiderman búningnum, hlustaði á mig, vafði utan um mig kóngulóavef og vaggaði mér þar til ég róaðist og bauð henni rauðvín. Sem endaði reyndar í hvítvíni, varaði hana samt við, sagði henni að þetta væri svona hvítvín sem að slagorðið "einu sinni smakkað þú getur ekki hætt" ætti vel við, og vitið menn ég hafði rétt fyrir mér merkilegt nokk. En svo að allir viti (þið tvö) hvað ég er að tala um þá var þetta hvítvínið "Sancerre" sem er ÓGEÐSLEGA gott frá Frakklandi, nammi nammi nammmm En nú stendur hér ein tóm hvítvínsflaska ennþá jafn ÓGEÐSLEGA góð.
Annars er ég að fara í ómenninguna á morgun, planið er að heimsækja Rakel vinkonu og skipuleggja væntanlega Londonferð auk þess ætla ég að skella mér ásamt knúsulegu drengjunum mínum á Ronju ræningjadóttur í Borgarleikhúsinu......ég hlakka voða til og drengjunum líka
Vonandi hafið þið það sem allra best elskurnar mínar,
knús og kossar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
183 dagar til flutninga
29.11.2006 | 15:32
já það er ekki að spyrja að því þetta styttist óðum og ég verð latari með degi hverjum, nenni ekki að taka til af því að ég er nú að fara að flytja....bara 183 dagar í það!!
Annars er ég á fullu í lærdómi, er núna að gera verkefni með tveim stúlkum um Hrísey í tengsum við heilsutengda ferðaþjónustu, sem er mjög skemmtilegt og áhugavert. En ég sem sagt ELSKA Hrísey
Annars er lítið að frétta hér á fyrrverandi höfuðstað Norðurlands, skrifa meira í kvöld eða ekki!!!
Knús knús
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ferðalag
28.11.2006 | 01:16
Nú er málið orðið alvarlegt, búin að bóka ferð til London 15 des. Á reyndar eftir að skoða gistimöguleika betur, en það kemur nú vonandi á morgun.
Síðast liðin tvö ár hef ég skellt mér til Akureyrar og gist á Gulu Villunni eina nótt.....en nú er litli lubbinn farin að vera góður með sig og þá dugar ekkert annað en Londonferð ekki það að ég hafi haldið að það yrði ekkert úr þessu tali nei nei hafði nú alveg fulla trú á þessu
Á morgun mun ég að öllum líkindum vera föst heima hjá mér þar sem að yngri knúsukallinn minn er lasin. Þetta er búið að vera pesta haust hjá okkur, gæti verið vegna skorts á rými...ca 50 fm íbúð en það er ekki sérlega stórt. Til að leysa úr þessu vandamáli munum við flytja í stærra húsnæði eftir nákvæmlega 184 daga (notaði dagatal og calculatorinn í tölvunni til að reikna þetta út). Já já Guðrún kella er nú dulítið klár he he Ég veit nú samt ekki hverjum hlakkar mest til að flytja mér eða drengjunum, en við munum stækka við okkur um 60 fm. sem sagt fara í 110 fm jú jú það eiga örugglega allir eftir að fá mikla víðáttufælni. Daníel er búin að vera að standa í samningaviðræðum við mig um það að þegar að allir fá sér herbergi þá þurfi ég að kaupa sjónvarp og græjur í þau öll Síðan segist hann ætla sjálfur að kaupa sér play station, af því að hann á svo marga peninga í sparibauknum sínum. En ég vinn í því að eyða þessum stórkostlegu ranghugmyndum hjá honum
Annars nóg um blaður og bull í kvöld elskurnar, óska ykkur góðra drauma
Knús og kossar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)